59 milljónir Fasteignasalan Nýtt heimili er með í sölu fimm herbergja endaraðhús ásamt innbyggðum bílskúr í Grafarholti.
59 milljónir Fasteignasalan Nýtt heimili er með í sölu fimm herbergja endaraðhús ásamt innbyggðum bílskúr í Grafarholti.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Grafarholt | Fasteignasalan Nýtt heimili er með til sölu fimm herbergja 189,4 fm endaraðhús ásamt innbyggðum 25,9 fm bílskúr í Grafarholti. Aðalhæð skiptist í anddyri, stofu, gestasalerni, eldhús og svefn- eða vinnuherbergi.
Grafarholt | Fasteignasalan Nýtt heimili er með til sölu fimm herbergja 189,4 fm endaraðhús ásamt innbyggðum 25,9 fm bílskúr í Grafarholti.

Aðalhæð skiptist í anddyri, stofu, gestasalerni, eldhús og svefn- eða vinnuherbergi. Innangengt er í bílskúr frá aðalhæð. Frá aðalhæð er steyptur stigi á neðri hæð sem skiptist í sjónvarpshol, stórt herbergi og rúmgóða snyrtingu innaf því, svefnherbergi með fataskáp, hjónaherbergi með fataherbergi, baðherbergi og þvottahús. Geymsla er undir stiga.

Að sögn fasteignasala eru innréttingar, tæki og efnisval vandað og allur frágangur í húsinu góður. Innfelld lýsing er á aðalhæð, líparítsteinn á gólfum og í eldhúsi. Stofan er með arni og gott útsýni úr stofu. Í eldhúsi er uppþvottavél og stór ísskápur sem fylgja. Sérsmíðað handrið úr ryðfríu stáli með viðarhandlista er á stiga. Lagnastokkar eru ófrágengnir á neðri hæðinni.

Innbyggður bílskúr með epoxy á gólfi og góðu hilluplássi. Innangengt á aðalhæð úr bílskúr, sem er með rafmagnshurð.

Framan við hús eru fjögur bílastæði, verönd er sín hvorum megin við húsið. Garður er rúmgóður, en lóð vestanmegin er ófrágengin.

Snyrtileg og góð eign þaðan sem er stutt í skóla og þjónustu.

Möguleiki er á að taka upp í þriggja herbergja íbúð.

Ásett verð er 59 milljónir.