Þegar allt lék í lyndi George Clooney og hin breska Lisa Snowdon.
Þegar allt lék í lyndi George Clooney og hin breska Lisa Snowdon.
BANDARÍSKI leikarinn George Clooney er sagður sjá mjög eftir fyrrverandi kærustu sinni, Lisu Snowdon, og sendir henni nú blóm og sms daginn út og daginn inn.

BANDARÍSKI leikarinn George Clooney er sagður sjá mjög eftir fyrrverandi kærustu sinni, Lisu Snowdon, og sendir henni nú blóm og sms daginn út og daginn inn.

Snowdon, sem er bresk fyrirsæta, kom nýverið fram í sjónvarpsþættinum Strictly Come Dancing í Bretlandi, og mun Clooney hafa orðið mjög ánægður með það sem fyrir augu bar.

„Áður er þátturinn hófst sendi George henni sms og óskaði henni góðs gengis. Þetta voru fyrstu samskipti þeirra í nokkuð langan tíma. Lisa varð mjög hissa, en bjóst ekki við að heyra meira frá honum,“ segir heimildarmaður um málið.

„Eftir þáttinn sendi George henni hins vegar önnur skilaboð þar sem hann lýsti því yfir að hún hafi komið mjög vel út í þættinum.“

Í kjölfarið hefur leikarinn svo sent stúlkunni blóm. Ekki fylgir þó sögunni hvort hún hafi fallið fyrir leikaranum að nýju.