Beykiskógar Fasteignasalan Lundur er með í sölu þessi nýju raðhús með bílskúr á Akranesi.
Beykiskógar Fasteignasalan Lundur er með í sölu þessi nýju raðhús með bílskúr á Akranesi.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Akranes og Borgarfjörður | Fasteignasalan Lundur er með til sölumeðferðar einbýlishús og parhús við Sóltún á Hvanneyri í Borgarfirði og raðhús við Beykiskóga á Akranesi. Byggingaraðili er Akur hf.
Akranes og Borgarfjörður | Fasteignasalan Lundur er með til sölumeðferðar einbýlishús og parhús við Sóltún á Hvanneyri í Borgarfirði og raðhús við Beykiskóga á Akranesi. Byggingaraðili er Akur hf. Akranesi

Hvanneyri: Einbýlishús samtals 145,4 fm með bílskúr og parhús 127 fm með bílskúr. Húsin afhendast fullfrágengin að utan með grófjafnaðri lóð og að innan er þeim skilað óeinangruðum, að öðru leyti er vísað til byggingarlýsingar. Lóð verður grófjöfnuð með mold og malarfyllingu í innkeyrslum og plönum. Húsin eru klædd að utan með bandsagaðri B-gagnvarinni furuklæðningu. Stafnar eru klæddir með láréttri klæðningu og úr sama efni. Allt tréverk að utan verður litað. Þak verður klætt með lituðum bárustálplötum og þakrennur og niðurföll verða úr plast/stáli. Gluggar og útihurðir verður hvítmálað og glerjað með K-gleri. Malarfylling verður sett í bílastæði og í innkeyrslu. Sjá að öðru leyti nánar í skilalýsingu.

Akranes: Raðhús með bílskúr. Hver íbúð er með þremur svefnherbergjum. Bílgeymsla er sambyggð og er innangengt í hana úr íbúð. Inn af bílgeymslu er geymsla og þvottaherbergi. Úr baðherbergi og stofu er útgangur á verönd/lóð. Baklóð hússins snýr í suðurátt. Húsunum verður skilað fullbúnum að utanverðu og óeinöngruðum að innan samkvæmt byggingarlýsingu. Byggt er upp með kraftsperrum þannig að öll loft í íbúðum verða tekin niður. Húsið verður klætt að mestu með flísum og í því verða álklæddir trégluggar og -útihurðir. Bílskúrshurðir eru einangraðar stálhurðir, uppsettar á brautum.