SLÖKKVILIÐ var kallað til laust fyrir klukkan fjögur í gærdag þegar starfsmaður Hagkaupa í Garðabæ læstist inni í frystigeymslu í versluninni.

Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins gengu björgunaraðgerðir fljótt og vel og að sögn slökkviliðsins varð manninum ekki alvarlega meint af. sigrunhlin@mbl.is