Sameining Jóhann R. Benediktsson lögreglustjóri, Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri kynntu sameinaða lögreglu á Suðurnesjum við athöfn í lögreglustöðinni í Keflavík í byrjun árs 2007. Jafnframt staðfesti ráðherra skipurit lögreglunnar.
Sameining Jóhann R. Benediktsson lögreglustjóri, Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri kynntu sameinaða lögreglu á Suðurnesjum við athöfn í lögreglustöðinni í Keflavík í byrjun árs 2007. Jafnframt staðfesti ráðherra skipurit lögreglunnar. — Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.

Eftir Helga Bjarnason

helgi@mbl.is

BJÖRN Bjarnason dómsmálaráðherra segir, í skriflegu svari til Morgunblaðsins, að markmið starfsfólks ráðuneytisins sé að haga sambandi við stofnanir ráðuneytisins á þann veg að ekki sé ástæða til að kvarta undan sleifarlagi eða athafnaleysi. Hann ræður af máli Jóhanns R. Benediktssonar, fráfarandi lögreglustjóra á Suðurnesjum, að hann sætti sig almennt illa við þá sem hafa yfir honum lögbundið afskiptavald. Björn segir um lausn á fjárhagsvanda lögreglustjóraembættisins að hann geri skiptingu ráðuneytisins á milli þriggja ráðuneyta að skilyrði fyrir tillögum um auknar fjárveitingar.

Jóhann R. Benediktsson gagnrýnir dómsmálaráðuneytið og ráðherra harðlega, meðal annars í viðtali við Morgunblaðið í gær. Hann ræðir um alvarlegan samskiptavanda við ráðuneytið og segir að barátta sín við það sem hann telur ómálefnalega málsmeðferð ráðherra og ráðuneytis hafa dregið mátt úr lögreglunni. Dómsmálaráðherra tilkynnti Jóhanni fyrr í mánuðinum að ákveðið hefði verið að auglýsa stöðu hans lausa til umsóknar en skipað er í embættið til fimm ára í senn.

Björn Bjarnason kannast ekki við þessa lýsingu Jóhanns á samskiptum hans við ráðuneytið. Hann segir meðal annars um þetta í skriflegu svari til Morgunblaðsins. „Allir, sem við mig hafa samband eða ráðuneytið, fá skjót viðbrögð. Að sjálfsögðu eru ekki allar tillögur samþykktar en markmið okkar í ráðuneytinu er að haga sambandi við stofnanir ráðuneytisins á þann veg, að ekki sé ástæða til að kvarta undan sleifarlagi eða athafnaleysi. Ráðuneytið er vel mannað, metnaðarfullu starfsfólki, og hið sama er að segja um embætti ríkislögreglustjóra, en það virðist Jóhanni sérstakur þyrnir í augum. Af máli hans má ráða, að hann sætti sig því miður almennt illa við þá, sem hafa yfir honum eitthvert lögbundið afskiptavald.

Ég hef ávallt svarað Jóhanni hafi hann sent mér orðsendingar og ávallt tekið því vel, hafi hann óskað eftir fundi með mér. Hann var til dæmis meðal fyrstu gesta á heimili mínu, eftir að ég kom af sjúkrahúsi í apríl 2007 og ræddum við þá lengi um persónulega hagi hans og framtíð embættisins. Hafi barátta Jóhanns við mig dregið úr krafti hans við að stjórna embætti sínu, get ég ekki annað en harmað, að hann hafi valið sér það hlutskipti. – Varla er unnt að kenna mér um það?“

Óvenjulegar kveðjur

Jóhann fer í viðtalinu þungum orðum um það sem hann nefnir tómlæti ríkislögreglustjóra og segir að hann hafi unnið gegn lögreglustjóranum á Suðurnesjum og hamast í sér. Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri birti stutta yfirlýsingu af þessu tilefni í gær en vildi ekki svara gagnrýninni að öðru leyti.

„Óvenjulegt er að lögregluforingi kveðji samstarfsmenn sína til margra ára með stóryrðum og hrakspám eða líki lögreglustarfi við sandkassaleik,“ segir í yfirlýsingu ríkislögreglustjóra. „Skipulagsbreytingar hafa reynt á hæfni og getu yfirmanna og hafa þeir sýnt festu og áræði til að ná settum markmiðum. Um þetta hefur verið samstaða meðal allra lögreglustjóra. Einn úr hópnum kýs nú að fara aðra leið. Það er hans val,“ segir ríkislögreglustjóri og lætur þess getið, um leið og hann óskar Jóhanni velfarnaðar á nýjum vettvangi, að hann telji að kveðja hans sé lögreglustjóra ekki samboðin.

Jóhann segir frá því í Morgunblaðinu að hann hafi í byrjun ágúst fengið bréf frá ráðuneytinu þar sem hann var, án skýringa, sviptur umboði til að sitja í stjórnarnefnd Landamærastofnunar Evrópu, FRONTEX. Björn segir í svari sínu þegar hann er spurður um þetta að ákvarðanir um setu manna í nefndum séu iðulega teknar á þann veg, að þeim sé tilkynnt það bréflega. „Ég hef ekki kynnst því áður, að það sé talið ámælisvert, að senda mönnum bréf með tilkynningu um það efni.“ Björn segist hafa ákveðið að flytja þetta verkefni inn í ráðuneytið og nú sitji lögfræðingur þar í stjórnarnefndinni. „Og hef ég fengið skýrslu frá honum en það er nýmæli fyrir mig,“ bætir Björn við.

Í aðsendri grein í Fréttablaðinu um helgina nefnir Björn að breytingar hafi orðið á launakjörum lögreglustjórans á Suðurnesjum eftir að sýslumannsembættið á Keflavíkurflugvelli var lagt niður vorið 2008. Björn segir í svari til Morgunblaðsins að laun Jóhanns hafi lækkað við þessa breytingu og Jóhann mælst til þess við ráðuneytið að það beitti sér gagnvart kjararáði í hans þágu. „Ráðuneytið hefur sent erindi þess efnis til kjararáðs, ef ég veit rétt. Niðurstaðan er óviss og ég tel, að af hálfu ráðuneytisins sé best að eyða þessari óvissu í eitt skipti fyrir öll og auglýsa embættið til að ráðningarkjör lögreglustjórans séu skýr og augljós,“ segir hann.

Stjórnsýsluábyrgð skýrð

Það verður kynnt í síðasta lagi á morgun hvernig forystu embættisins verður háttað næstu þrjá mánuði en auglýst verður eftir nýjum lögreglustjóra og skipað í embættið frá 1. janúar næstkomandi.

Spurður að því hvort tillögum fráfarandi lögreglustjóra um fækkun starfsfólks verði hrint í framkvæmd eða hvernig séð verði til þess að endar nái saman segir dómsmálaráðherra í svari í tölvupósti að ekki sé unnt að taka á fjárhagsvanda embættisins til frambúðar án þess að stjórnsýsluábyrgðin sé skýr. Samhliða þeim uppskiptum á embættinu milli þriggja ráðuneyta sem hann hefur lagt áherslu á þurfi að fara ofan í fjárhagsvandann og taka á honum. „Ég hef sett það sem skilyrði fyrir tillögum frá mér um auknar fjárveitingar, að þessi leið sé farin,“ segir Björn Bjarnason.

Í hnotskurn
» Lögreglan á Suðurnesjum varð til 2007 með sameiningu lögreglunnar í Keflavík og lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli.
» Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli, varð lögreglustjóri sameiginlegs liðs.
» Er dómsmálaráðherra tilkynnti Jóhanni að embættið yrði auglýst nú, ákvað hann að sækja ekki um og óskaði eftir að láta af störfum.

Lögreglustjórar styðja dómsmálaráðherra

Lögreglustjórafélag Íslands lýsir yfir eindregnum og óskoruðum stuðningi við dómsmálaráðherra og starfsmenn dómsmálaráðuneytis, segir í yfirlýsingu sem stjórn félagsins sendi frá sér í gær.

Í stjórn Lögreglustjórafélags Íslands eru Kjartan Þorkelsson sýslumaður og lögreglustjóri á Hvolsvelli, en hann er formaður félagsins, Ólafur K. Ólafsson sýslumaður og lögreglustjóri í Stykkishólmi, varaformaður, Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður og lögreglustjóri á Selfossi, ritari, Sigríður B. Guðjónsdóttir vararíkislögreglustjóri, gjaldkeri, og Lárus Bjarnason, sýslumaður og lögreglustjóri á Seyðisfirði en hann er meðstjórnandi.

„Björn Bjarnason hefur eflt og styrkt lögregluna og réttarvörslukerfið í embættistíð sinni og átt gott og náið samstarf við lögreglustjóra landsins. Sama gildir um starfsmenn ráðuneytisins, sem hafa af ósérhlífni lagt sig fram um að aðstoða stofnanirnar í smáu sem stóru. Á sama hátt hefur embætti ríkislögreglustjóra verið boðið og búið þegar einstök lögreglustjóraembætti hafa þurft á aðstoð að halda í hvaða formi sem er. Lögreglustjórafélagið harmar því þær illskeyttu og persónulegu árásir sem ráðherra og einstakir starfsmenn lögreglukerfisins hafa þurft að sæta og kallar þess í stað á málefnalegar umræður um starfsemi lögreglunnar og skipulag hennar,“ segir í yfirlýsingu Lögreglustjórafélags Íslands.