34,5 milljónir FBJ fasteignasala er með miðhæð við Langholtsveg á sölu.
34,5 milljónir FBJ fasteignasala er með miðhæð við Langholtsveg á sölu.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Reykjavík | Fasteignasala Brynjólfs Jónssonar er með í sölu endurnýjaða 105,6 fm miðhæð auk 28,8 fm bílskúrs, alls 134,4 fm í þríbýlishúsi. Sérinngangur og fjögur svefnherbergi. Húsið stendur á rólegum stað á baklóð. Heildarstærð eignarinnar er 134,4.
Reykjavík | Fasteignasala Brynjólfs Jónssonar er með í sölu endurnýjaða 105,6 fm miðhæð auk 28,8 fm bílskúrs, alls 134,4 fm í þríbýlishúsi. Sérinngangur og fjögur svefnherbergi. Húsið stendur á rólegum stað á baklóð. Heildarstærð eignarinnar er 134,4. fm. Sérinngangur. Forstofa með flísum á gólfi, dyr inn í sameign og skápum. Forstofuherbergi með parketi á gólfi og nýlegum skáp. Gangur með flísum á gólfi. Herbergi með parketi á gólfi og skáp. Björt stofa með gluggum á tvo vegu, parketi á gólfi og viðargluggatjöldum. Herbergi með dúk á gólfi. Endurnýjað baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, glugga, sturtuklefa og innréttingu. Hjónaherbergi með parketi á gólfi, góðum, nýlegum skápum og harðviðargluggatjöldum. Endurnýjað eldhús með gluggum á tvo vegu innréttingu, parketi á gólfi og borðkrók. Öll gólfefni á íbúðinni eru nýlega endurnýjuð. Í kjallara er sameiginlegt þvottahús. Geymsla er undir útitröppum. Eigninni fylgir bjartur 28,8 fm bílskúr með góðum gluggum og geymsluaðstöðu. Ótengd hitalögn er í stétt við innganginn. Þak og gler er nýlega endurnýjað.

Ásett verð er 34,5 milljónir.