Björgunarskip Skipið Húnabjörg frá Björgunarsveit Skagastrandar.
Björgunarskip Skipið Húnabjörg frá Björgunarsveit Skagastrandar.
ELDUR kom upp í 18 tonna báti á Húnaflóa klukkan hálffimm á laugardag. Þrír menn voru um borð í bátnum. Björgunarskipið Húnabjörg á Skagaströnd var kallað út og sjálfboðaliðar í björgunarsveitum á Hvammstanga og Drangsnesi voru í viðbragðsstöðu.

ELDUR kom upp í 18 tonna báti á Húnaflóa klukkan hálffimm á laugardag. Þrír menn voru um borð í bátnum.

Björgunarskipið Húnabjörg á Skagaströnd var kallað út og sjálfboðaliðar í björgunarsveitum á Hvammstanga og Drangsnesi voru í viðbragðsstöðu. Mönnunum sem voru um borð tókst að slökkva eldinn og Húnabjörg tók hann því næst í tog til hafnar. Að sögn lögreglunnar á Blönduósi slasaðist enginn.