Sólrún Bragadóttir
Sólrún Bragadóttir
AF hjartans lyst er yfirskrift hádegistónleika í Hafnarborg á morgun klukkan 12, en þar mun Sólrún Bragadóttir syngja við undirleik Antoníu Havesi píanóleikara.

AF hjartans lyst er yfirskrift hádegistónleika í Hafnarborg á morgun klukkan 12, en þar mun Sólrún Bragadóttir syngja við undirleik Antoníu Havesi píanóleikara. Á efnisskránni eru þekktar söngperlur eins og aría Rúsölku, La Wally, Casta Díva ásamt þekktum ljóðum.

Ljóðasöngur hefur alla tíð verið stór þáttur á listferli Sólrúnar og hún sungið fjöldann allan af ljóðatónleikum víða um heim. Um þessar mundir syngur hún hlutverk Neddu í I Paglilacci í Íslensku óperunni.