Billy Ray Cyrus, fyrrverandi rokkari og faðir hinnar 15 ára gömlu barnastjörnu Miley Cyrus, segist vera mjög sáttur við nýjan kærasta stúlkunnar.

Billy Ray Cyrus, fyrrverandi rokkari og faðir hinnar 15 ára gömlu barnastjörnu Miley Cyrus, segist vera mjög sáttur við nýjan kærasta stúlkunnar. Miley og hinn tvítugi Justin Gaston hafa verið að stinga saman nefjum og þykir mörgum Miley vera fullung til að eiga svo gamlan kærasta.

„Í rauninni minnir hann mig þó nokkuð mikið á sjálfan mig þegar ég var tvítugur og leitaði að draumnum,“ segir Billy Ray sem finnst ekkert athugavert við hinn fullorðna kærasta dóttur sinnar.

vij