„Starfsmenn eru mjög slegnir en samkvæmt orðum viðskiptaráðherra höfum við ennþá starf þannig að við reynum að halda ró okkar og halda áfram störfum“ segir Helga Jónsdóttir yfirtrúnaðarmaður starfsfólks Landsbankans.

„Starfsmenn eru mjög slegnir en samkvæmt orðum viðskiptaráðherra höfum við ennþá starf þannig að við reynum að halda ró okkar og halda áfram störfum“ segir Helga Jónsdóttir yfirtrúnaðarmaður starfsfólks Landsbankans. „Andrúmsloftið hér er undarlegt, við erum slegin en við höldum ótrauð áfram, við verðum bara að gera það.“

Helga segir að fundur ráðherra með starfsmönnum Landsbankans í hádeginu í gær hafi verið innihaldsrýr. „Þar kom svo sem ekkert meira fram en hafði þegar verið sagt á blaðamannafundinum. Ég hef svo sem trú á að stjórnarmenn bankans séu að róa að því öllum árum að bjarga málum og við verðum bara að hafa trú á því.“ fr