MATSFYRIRTÆKIÐ Fitch Ratings lækkaði í gær lánshæfiseinkunnir Landsbankans fyrir langtímaskuldbindingar niður um flokk , úr BBB í B.

MATSFYRIRTÆKIÐ Fitch Ratings lækkaði í gær lánshæfiseinkunnir Landsbankans fyrir langtímaskuldbindingar niður um flokk , úr BBB í B. Einkunnir vegna innlendra og erlendra skammtímaskuldbindinga bankans voru lækkaðar í B úr F3 og einkunn fyrir fjárhagslegan styrk sem F úr C. Lánshæfismatseinkunnir bankans eru á athugunarlista.

Fitch lækkaði einnig lánshæfismat Glitnis í gær. Langtíma lánshæfismatseinkunn bankans fer úr BBB- í B. Vegna þessa lækkaði skammtímaeinkunn Glitnis úr F3 í B. Stuðningseinkunn fór úr 2 í 4. Einkunnir fyrir víkjandi lán voru færðar úr BB í CCC annars vegar og B í C hins vegar. Sjálfstæð einkunn var staðfest sem F. gummi@mbl.is