Bætir á sig Renee Zellweger.
Bætir á sig Renee Zellweger.
BRESKA leikkonan Renee Zellweger hefur bætt á sig einum fimm kílóum, og mun ástæðan vera sú að hún telur að það hjálpi sér við að ná í karlmann. „Renee hafði áhyggjur af því að grannur vöxtur hennar gerði hana bæði aumingjalega og ellilega.

BRESKA leikkonan Renee Zellweger hefur bætt á sig einum fimm kílóum, og mun ástæðan vera sú að hún telur að það hjálpi sér við að ná í karlmann.

„Renee hafði áhyggjur af því að grannur vöxtur hennar gerði hana bæði aumingjalega og ellilega. Hún verður fertug eftir hálft ár og vill alls ekki vera ein á báti þegar að því kemur,“ segir vinur leikkonunnar í viðtali.

Zellweger, sem bætti nokkrum kílóum á sig fyrir hlutverk sitt í fyrstu myndinni um Bridget Jones árið 2001, hefur verið mjög grönn um nokkurt skeið. Hún hefur hins vegar breytt mataræði sínu til þess að bæta á sig kílóunum.

„Hér áður fyrr borðaði hún bara ferska ávexti í morgunmat, en núna borðar hún stundum beyglu með rjómaosti eða jafnvel kleinuhring. Og hún er líka hætt að mæta í ræktina fimm eða sex sinnum í viku eins og hún gerði,“ segir heimildarmaðurinn.