Stórleikarinn Johnny Depp er sagður um þessar mundir vera við það að skrifa undir samning um að feta enn eina ferðina í fótspor sjóræningjans Jacks Sparrows.
Stórleikarinn Johnny Depp er sagður um þessar mundir vera við það að skrifa undir samning um að feta enn eina ferðina í fótspor sjóræningjans Jacks Sparrows. Depp mun samþykkja að leika í fjórðu Pirates of the Caribbean-myndinni en að launum fær hann 56 milljónir dollara í fyrirframgreidd laun. Þetta mun vera hæsta fjárhæð sem leikari hefur fengið greidda fyrirfram en metið átti sjálfur Tom Hanks.