Hlynur Bæringsson
Hlynur Bæringsson
HLYNUR Bæringsson og Sigurður Þorvaldsson, leikmenn úrvalsdeildarliðs Snæfells, munu einnig þjálfa liðið í vetur.

HLYNUR Bæringsson og Sigurður Þorvaldsson, leikmenn úrvalsdeildarliðs Snæfells, munu einnig þjálfa liðið í vetur.

Í gær tók stjórn körfuknattleiksdeildarinnar þá ákvörðun að rifta samningum við þjálfara liðsins, Jordanco Davitkov, sem kom frá Makedóníu í sumar og samningum við þrjá erlenda leikmenn liðsins var einnig sagt upp þar sem ljóst var að félagið myndi ekki geta staðið við skuldbindingar sínar í þeirri óvissu sem ríkir í efnahagsmálum Íslands.

Sigurður og Hlynur eru báðir lykilmenn í íslenska landsliðinu en þeir hafa ekki stýrt liði í úrvalsdeild áður. Snæfell lék til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn sl. vor og komst í undanúrslit Powerade-bikarsins um sl. helgi.

seth@mbl.is