Hamingja Paris Hilton og Benji Madden stefna á barneignir.
Hamingja Paris Hilton og Benji Madden stefna á barneignir.
PARIS Hilton segist vilja eignast þrjú eða fjögur börn með kærastanum sínum, rokkaranum Benji Madden. Hótelerfinginn og rokkarinn kynntust þegar besta vinkona Parisar, Nicole Richie, byrjaði með tvíburabróður hans, Joel.

PARIS Hilton segist vilja eignast þrjú eða fjögur börn með kærastanum sínum, rokkaranum Benji Madden. Hótelerfinginn og rokkarinn kynntust þegar besta vinkona Parisar, Nicole Richie, byrjaði með tvíburabróður hans, Joel. Paris er nú þegar farin að skipuleggja framtíðina, og hún telur að Madden verði mjög góður faðir.

„Ég vil eignast svona þrjú eða fjögur börn. Og ég vil eignast þau fljótlega, kannski eftir eitt eða tvö ár,“ segir hún.

Paris hefur áður átt kærasta á borð við Rick Salomon, Nick Carter og Jason Shaw. Hún segist hins vegar aldrei hafa verið hamingjusamari en einmitt núna.

„Við Benji erum búin að vera saman í sjö mánuði, og við erum alveg rosalega hamingjusöm.“