Beyonce Knowles
Beyonce Knowles
SÖNGKONAN Beyonce Knowles hefur nú í fyrsta sinn tjáð sig um hjónaband sitt og rapparans Jay-Z, en þau hjónakorn hafa hingað til ekki einu sinni viljað staðfesta að þau væru gift þó að brúðkaup þeirra í apríl sl. spyrðist út til fjölmiðla.

„Það sem við Jay höfum er mjög raunverulegt. Það snýst ekki um viðtöl eða það að láta taka af okkur myndir,“ sagði hún í samtali við tímaritið Essence . Þá sagði Beyonce að hún vildi að sín yrði minnst í framtíðinni sem tónlistarmanns sem hefði sett sín spor á tónlistarsöguna. „Ég vil að fólk virði mig sem konu í mjög hæfileikaríkum sönghópi sem átti góð lög og frábærar raddir. Við breyttum menningu kvenna, ekki bara í Bandaríkjunum heldur um allan heim.“