Ásdís Rán hefur greinilega ekki fylgst vel með fréttaflutningi hér á landi varðandi þrot efnahagslífsins.
Ásdís Rán hefur greinilega ekki fylgst vel með fréttaflutningi hér á landi varðandi þrot efnahagslífsins. Á bloggi sínu segist hún hafa verið að millifæra evrur í fyrradag er áttu að vera á genginu 172, en það voru upplýsingarnar er hún fékk af heimasíðu Glitnis. Henni til mikillar undrunar sá hún svo að gengið var 155 samkvæmt mbl.is en 132 samkvæmt Landsbankanum. Hún heimtar svör. bös