Fundur Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra og Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra sátu fyrir svörum á fundi starfsmanna Landsbankans í gær.
Fundur Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra og Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra sátu fyrir svörum á fundi starfsmanna Landsbankans í gær. — Morgunblaðið/Brynjar Gauti
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is BJÖRGVIN G. Sigurðsson viðskiptaráðherra sagði á blaðamannafundi í gærmorgun og á fundi með starfsmönnum Landsbankans skömmu síðar, að engin breyting yrði á högum almennra starfsmanna bankans.

Eftir Steinþór Guðbjartsson

steinthor@mbl.is

BJÖRGVIN G. Sigurðsson viðskiptaráðherra sagði á blaðamannafundi í gærmorgun og á fundi með starfsmönnum Landsbankans skömmu síðar, að engin breyting yrði á högum almennra starfsmanna bankans. Engu að síður ríkti mikil óvissa um nánustu framtíð í röðum þeirra og annarra bankamanna, en viðskiptaráðherra sagði við mbl.is að uppsagnir væru ekki á dagskrá. „Það er svo fjarri því að það standi til eða liggi fyrir,“ sagði hann í gær.

Í Samtökum starfsmanna fjármálafyrirtækja, SSF, eru um 5.000 starfsmenn hérlendis. Nokkur þúsund manns starfa hjá íslenskum fjármálafyrirtækjum erlendis og þar af langflestir erlendir, að sögn Friðberts Traustasonar, formanns og framkvæmdastjóra SSF. Hann segir um kjör þeirra að yfirleitt séu starfsmenn erlendis ráðnir hjá viðkomandi fyrirtæki samkvæmt kjarasamningum og lögum í viðkomandi landi, en síðan 2004 hafi fólk getað borgað í lífeyrissjóð í upprunalandi sínu.

Um 25% fækkun starfsmanna

Verði sameining banka og sparisjóða að veruleika má gera því skóna að starfsfólki fækki. Friðbert bendir á að á árunum 1990 til 1994 hafi sameiningarhrina banka gengið yfir, þegar fjórir bankar hafi sameinast Íslandsbanka og Landsbankinn keypt Samvinnubankann. Við þessar tilfæringar hafi starfsmönnum fækkað um 25%, farið úr um 4.000 í um 3.000. Hagræðingin hafi að mestu náðst án uppsagna vegna mikillar starfsmannaveltu. Á hverju ári í mörg ár hafi um 5 til 10% starfsmanna í fjármálastofnunum skipt um starf, en nú sé almennt ekki bjart yfir vinnumarkaðnum og því erfiðara um vik fyrir starfsfólk fjármálastofnana að fara annað. „Um leið og súrefnið, sem heitir peningar, fer úr þjóðfélaginu eru ekki bara bankar í vondri stöðu heldur líka öll fyrirtæki í landinu,“ segir Friðbert.

Friðbert áréttar að síðast í gær hafi forsætisráðherra sagt að það megi ná fram verulegri hagræðingu. „Á íslensku þýðir hagræðing að fækka fólki,“ segir hann.

Bankar og sparisjóðir eru með víðtækt net um allt land, alls um 150 útibú, að sögn Friðberts. Hann segir að víða séu þetta fyrst og fremst þjónustustofnanir, sem skili ekki hagnaði. Útibúum hafi verið lokað en engar upplýsingar hafi borist um framhaldið.

Friðbert segir að starfsmenn séu uggandi um framhaldið. „Óvissan er svo slæm,“ segir hann og bætir við að í óvissu magnist allar sögur og alltaf séu einhverjir tilbúnir að búa til sögur. „Þær magnast upp af því að það koma ekki rétt skilaboð frá þeim sem stjórna,“ segir hann.

S&S

Hvað eru margir starfsmenn hjá íslenskum fjármálafyrirtækjum?

Um síðustu áramót voru um 5.500 starfsmenn innan Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Um nýliðin mánaðamót voru þeir um 5.000.

Hvernig skiptast þeir gróflega á fyrirtæki?

Skiptingin um áramótin var þannig að Landsbankinn var með um 1.500 starfsmenn, Kaupþing um 1.200, Glitnir um 1.100, sparisjóðirnir um 1.000 og síðan nokkur hundruð hjá fyrirtækjum í eigu bankanna eins og t.d. hjá Reiknistofu bankanna, Visa og Kreditkortum.

Hvað með starfsmenn íslenskra fjármálafyrirtækja erlendis? Þeir eru nokkur þúsund og langflestir erlendir.

Eldsneytið lækkar mikið

HJÁ Atlantsolíu lækkaði bensínið um 11 kr. í gær í 165,10 kr. og díselolíulítrinn um 13 kr. í 184,90 kr. Hjá N1 lækkaði bensínið um 11 kr. niður í 166,70 kr. og díselið um 13 kr. í 186,60 kr. Hjá Olís var verðið á bensíni 166,70 kr. og á díselolíu 186,60 kr. og hafði bensínið þá lækkað um 11 kr. og olían um 13 kr. Skeljungur lækkaði bensínlítrann og díselolíu um sömu krónutölu og er verðið á bensíni nú 166,70 kr. og á díselolíu 186,60 kr.

Miðað er við verð í sjálfsafgreiðslu. Að sögn Magnúsar Ásgeirssonar, innkaupastjóra hjá N1, má rekja lækkunina til þeirrar styrkingar sem varð á gengi krónunnar í gær, eftir innkomu Seðlabankans á gjaldeyrismarkaði.

Stigvaxandi atvinnuleysi

Á SÍÐUSTU fimm vikum hefur fjölgað á atvinnuleysisskrá um 536 manns. Skráð atvinnuleysi mælist núna um 1,6%, en í lok ágúst mældist það 1,2%. Atvinnuleysi eykst því mjög hratt þessa dagana.

Í lok ágúst voru 2.269 manns á atvinnuleysisskrá á landinu, 1.053 karlar og 1.216 konur. Aðeins fjölgaði um 17 manns á atvinnuleysisskrá í ágústmánuði. Síðustu vikur hefur orðið mikill viðsnúningur. Í gær voru 2.803 á skrá. „Þetta er að þyngjast,“ segir Sigurður Bessason, formaður Eflingar, um tölurnar. Hann segir brýnt að stjórnvöld dragi upp aðgerðarplan til að vinna gegn atvinnuleysi. Það þýði auknar framkvæmdir ríkis og sveitarfélaga. egol@mbl.is