Mátar Andri Snær og Bath.
Mátar Andri Snær og Bath.
BÓK Andra Snæs Magnasonar Draumalandið verður gefin út erlendis á næstunni, þar á meðal í Bretlandi, Danmörku og Japan.

BÓK Andra Snæs Magnasonar Draumalandið verður gefin út erlendis á næstunni, þar á meðal í Bretlandi, Danmörku og Japan. Hann er nú í upplestrarferð um Bretland þar sem hann sótti meðal annars Bath lávarð heim og líkti hann heimsókninni við það að líta inn til Frank-N-Furters úr kvikmyndinni Rocky Horror Picture Show .

Bath lávarður lifir um margt sérstöku lífi og hefur til að mynda átt yfir 70 ástkonur, oft á milli 10 og 20 í einu, auk þess að eiga eiginkonu og börn. „Við fengum til dæmis að sjá kama sutra herbergið hans sem hann er búinn að láta skreyta sjálfur. Þar eru til dæmis sex nashyrningshorn á rúmstokknum, þau eru talin örva kynhvötina,“ sagði Andri Snær. | 29