Gott málefni „Hér vinna 14 konur og ein úr okkar hópi hefur fengið brjóstakrabbamein. Svo eiga margar okkar dætur, systur og mæður þannig að málið stendur okkur nærri,“ segir Linda S.

Gott málefni

„Hér vinna 14 konur og ein úr okkar hópi hefur fengið brjóstakrabbamein. Svo eiga margar okkar dætur, systur og mæður þannig að málið stendur okkur nærri,“ segir Linda S. Aðalbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri Heilsu og fegurðar, en starfsmenn fyrirtækisins ætla að gefa 5 prósent launa sinna til átaksins Bleiku slaufunnar, ásamt því sem þær selja bleiku slaufuna í fyrirtækinu. „Við vildum gera eitthvað jákvætt og ekki veitir af.“