Eftir miklar kjaftasögur hefur það loks verið staðfest að fækkað hafi í kvennabúri glaumgosans Hughs Hefners. Holly Madison, ein af þremur kærustum Hef, hefur slitið sambandi sínu við glaumgosann og er flutt út úr Playboy-setrinu.
Eftir miklar kjaftasögur hefur það loks verið staðfest að fækkað hafi í kvennabúri glaumgosans Hughs Hefners. Holly Madison, ein af þremur kærustum Hef, hefur slitið sambandi sínu við glaumgosann og er flutt út úr Playboy-setrinu. Holly, sem hefur verið talin kvenna fremst hjá hinum aldna Hef, hefur fengið sér íbúð og reynir nú að standa á eigin fótum, sem gæti verið erfitt eftir að hafa vanist lúxuslífinu á setrinu.