Jóhannes Karl Guðjónsson
Jóhannes Karl Guðjónsson
JÓHANNES Karl Guðjónsson, leikmaður Burnley, varð ekki fyrir valinu sem leikmaður septembermánaðar í ensku 1. deildinni í knattspyrnu en Jóhannes var einn fjögurra leikmanna sem voru tilnefndir í kjörinu.

Kevin Doyle framherji Reading var útnefndur leikmaður mánaðarsins en hann skoraði fimm mörk í jafnmörgum leikjum með liðinu sem þrír Íslendingar leika með, Brynjar Björn Gunnarsson, Ívar Ingimarsson og Gylfi Þór Sigurðsson.

Jóhannes Karl hefur leikið mjög vel með Burnley að undanförnu og skoraði m.a. tvö glæsileg mörk, en Burnley fékk 13 stig af 15 mögulegum í september, lyfti sér upp í fjórða sæti, og Owen Coyle var fyrir vikið kjörinn knattspyrnustjóri septembermánaðar í deildinni. gummih@mbl.is