Framleiðslufyrirtæki leikarans Steve Carrell, Carousel Productions, hefur gert þriggja mynda samning við Warner Bros. kvikmyndaverið.

Framleiðslufyrirtæki leikarans Steve Carrell, Carousel Productions, hefur gert þriggja mynda samning við Warner Bros. kvikmyndaverið. Það þýðir að Warner mun fyrst allra fá tækifæri til að dreifa myndum Carousel, að því gefnu að eitthvað sé í myndirnar varið. Þar að auki mun Warner-kvikmyndaverið vera að undirbúa framhald af Get Smart, með Carrell í aðalhlutverki. vij