BJÖRGUNARSVEITIN Garðar á Húsavík aðstoðaði fólk sem hafði fest jeppabifreið sína á sjöunda tímanum í gærkvöldi. Fólkið hafði fest bílinn við afleggjarann að Dettifossi, vestan megin við Jökulsána.

BJÖRGUNARSVEITIN Garðar á Húsavík aðstoðaði fólk sem hafði fest jeppabifreið sína á sjöunda tímanum í gærkvöldi.

Fólkið hafði fest bílinn við afleggjarann að Dettifossi, vestan megin við Jökulsána.

Björgunarsveitarmenn voru komnir að jeppanum um tíuleytið og gekk vel að toga bílinn af stað. Fólkinu mun ekki hafa orðið meint af biðinni.