Birtingsmaður Thor Vilhjálmsson var einn af Birtingsmönnum en tímaritið var gefið út 1953-68.
Birtingsmaður Thor Vilhjálmsson var einn af Birtingsmönnum en tímaritið var gefið út 1953-68. — Morgunblaðið/Kristinn
Eftirfarandi texti eftir Thor Vilhjálmsson birtist í tímaritinu Birtingi árið 1959. Það var árið sem svokölluð viðreisnarstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks var mynduð en hún sat við völd í tólf ár. En textinn á kannski ekki síður erindi við okkur nú.
Þjóðinni hefur lánazt að hefja fágaða stjórnvitringa uppfyrir sig sjálfa til að ráðstafa aurunum sem eitt sinn höfðu þá óheppilegu stefnu að ætla sér ofan í vasa þegnanna en hefur nú með kænsku og snilli sérfræðinga í aurum verið beint þaðan undir hinu glæsta merki viðreisnarinnar sem er háleit og dularfull eins og fornaldarinnar sálútvíkkandi launhelgar og er ekki nema á vitorði æðstu prestanna hvað verið er að reisa við. Þeir einir þykjast sjá eitthvað rísa líkt og með ófresku skyni afrísku töfradoktora með náttúrubörnum myrkviðarins. Og þegar sauðsvartur almúgi sér aðeins hrynja og falla kringum sig þá segja þessir doktorar í abrakadabra: nú liggur vel á mér. Frelsið, segja þeir við þá sem eru fastir undir rústum draumsins um að rísa undir íbúðarhúsi sem þeir hafa haft fyrir tómstundayndi að þræla í að byggja. Frelsið er hið glæsta hnossið, segja þeir við þá sem með einu pennastriki er gert að borga nær tvöfalt hærri vexti af lánum sem margur heiðarlegur maður var áður að kikna undir, geta hvorki selt né haldið áfram, fólk sem dreymir um að búa í húsi og slítur sér út á fáum árum við það samkvæmt sinni eigin frelsisþrá. Sitja bara fastir eins og fluga á límbornum pappír.