ALLSHERJARGOÐI og Kjalnesingagoði munu blóta landi og þjóð til heilla við þvottalaugarnar í Laugardal í dag kl. 17.
ALLSHERJARGOÐI og Kjalnesingagoði munu blóta landi og þjóð til heilla við þvottalaugarnar í Laugardal í dag kl. 17.
Í tilkynningu félagsins segir að á þessum viðsjártímum sé farsælast að vera í sátt við hollar vættir og standa vörð um þau gildi og verðmæti sem tryggust eru fyrir framtíð okkar og komandi kynslóða. Munu þeir Steindór Andersen og Erpur Eyvindarson kveða óreiðuöflin í kútinn. Allir eru velkomnir.