Við Upptyppinga, norðan Vatnajökuls, verða nú atburðir sem ekki hafa sést áður. Vísindamenn fylgjast spenntir með skjálftavirkni sem hefur farið vaxandi á undanförnum vikum.
Við Upptyppinga, norðan Vatnajökuls, verða nú atburðir sem ekki hafa sést áður. Vísindamenn fylgjast spenntir með skjálftavirkni sem hefur farið vaxandi á undanförnum vikum. Athyglisvert þykir að skjálftarnir mælast nú mun grynnra í jarðskorpunni en skjálftar sem mældust á sömu slóðum í fyrra.
Talið er hugsanlegt að kvika sé að brjóta sér leið ofar í jarðskorpuna. | 4