Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
VERULEG fjölgun varð á komum á bráðamóttöku Landspítalans við Hringbraut fyrri hluta þessa mánaðar. Þangað koma einkum þeir sem eru með einkenni frá hjarta eða maga og segist sviðsstjóri á deildinni ekki hafa aðrar skýringar á þessu en aukið álag og áhyggjur vegna kreppunnar.
Már Kristjánsson, sviðsstjóri lækninga á slysa- og bráðasviði, segir að á tímabilinu 3.-9.október hafi komið 25% fleiri sjúklingar á bráðamóttökuna við Hringbraut heldur en sem nemur meðaltali 40 vikna þar á undan. Í vikunni 10.-16. október hafi enn fjölgað og fjöldinn verið 35% meiri en sem nemur fyrrnefndu 40 vikna meðaltali.
Skýringuna að finna í kreppunni
Á sama tíma fækkaði þeim sem komu á slysa- og bráðamóttökuna í Fossvogi, sem tekur bæði við slösuðum og þeim sem eru með önnur veikindi en út frá brjóst- og kviðarholi. Nemur fækkunin 5-7% miðað við sömu reikningsaðferðir.„Við verðum að líta svo á að skýringuna á þessu sé að finna í kreppunni,“ segir Már Kristjánsson. „Bæði brjóstverkur og magaverkur geta verið spennutengd veikindi og fólk hefur leitað í auknum mæli á bráðamóttökuna við Hringbraut síðustu vikur vegna gruns um þessi veikindi. Fólk fær ekki lungnabólgu sérstaklega í kreppunni, en getur fengið fyrir hjartað eða í magann. Öll geðshræring, álag eða áföll geta haft líkamleg eða andleg áhrif,“ segir Már.