Madonna Sögð vera á ferðinni.
Madonna Sögð vera á ferðinni.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
MEINTUR ástmaður Madonnu, hafnaboltahetjan Alex Ridriguez, er sagður vilja færa sig um set í New York til að geta verið nær söngkonunni.
MEINTUR ástmaður Madonnu, hafnaboltahetjan Alex Ridriguez, er sagður vilja færa sig um set í New York til að geta verið nær söngkonunni. Heimildir herma að A-Rod eins og hann er iðulega kallaður, búi nú við Columbus Circle (við suðvestur-horn Central Park), fimm strætum sunnar frá heimili Madonnu en nú vilji hann færa sig þremur strætum ofar. Sögur um ástarsamband Madonnu og A-Rod komust á kreik í sumar þegar því var haldið fram að hafnaboltahetjan hefði íbúð á leigu í Time Warner-byggingunni þar sem þau hittust á laun. Þá hefur því einnig verið haldið fram að Madonna hafi blásið í glæður gamals ástarsambands sem hún átti í með mafíósanum Chris Paciello sem var dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir morð árið 1999. Mun Madonna hafa flogið til Miami þar sem Paciello býr í hvert skipti sem hún gerir hlé á tónleikaferð sinni um Bandaríkin. Fréttir af skilnaði Madonnu og Richie hafa verið misvísandi að undanförnu og greinilega margir slúðurberarnir sem hringsnúast um skilnað þeirra hjóna. Á sunnudag var þó haft eftir lögfræðingi Madonnu, Lis Rosenberg að skilmálar skilnaðarins væru enn óklárir og því ekki ljóst hvernig skiptin á eignum þeirra færu fram.