— Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Þrestir eru bersýnilega bráðgreindir.
Þrestir eru bersýnilega bráðgreindir. Vegna mikilla snjóalaga og hríðar á Akureyri var erfitt að finna æti en nokkrir „bræður“ í Glerárhverfi á Akureyri gripu til þess ráðs að næla sér í reyniber úr fallegum kransi sem handlagin húsmóðir útbjó á dögunum og hengdi á útihurðina á heimili sínu. Þeir voru varir um sig og flugu jafnan á brott um leið og einhver átti leið hjá – en voru líklega aðeins of gráðugir í þetta skipti þannig að ljósmyndarinn náði að munda vélina. Annar stendur á öðrum fæti en hinn virðist sýna honum stoltur hversu fallegu beri hann náði af kransinum.