Rík Tom Cruise og Katie Holmes.
Rík Tom Cruise og Katie Holmes. — Reuters
SURI litla Cruise ætti að geta dreift vel úr dótinu sínu en fregnir herma að leikherbergið hennar samanstandi af heilli íbúð.

SURI litla Cruise ætti að geta dreift vel úr dótinu sínu en fregnir herma að leikherbergið hennar samanstandi af heilli íbúð.

Foreldrar hennar, Tom Cruise og Katie Holmes, hafa smátt og smátt verið að kaupa upp íbúðir í tólf hæða fjölbýlishúsi í New York. Þau eiga nú fimm hæðir í húsinu. Ein er íbúð þeirra hjóna, ein er leikherbergi dótturinnar, önnur er æfingarsalur og tvær íbúðir eru fyrir þjónustufólkið. Íbúðirnar eru allar aðskildar og hver á sinni hæðinni.

Tom Cruise þykir víst mjög viðkunnanlegur nágranni og blandar geði við hina í blokkinni á meðan frúin er meira út af fyrir sig. „Tom sést oft fara inn og út og er mjög vingjarnlegur við alla sem hann hittir. En Katie vill láta minna fyrir sér fara og eru nágrannarnir frekar fúlir yfir því,“ segir viðmælandi við dagblaðið New York Post.

Þau dvelja í NY á meðan Holmes fer með hlutverk á Broadway.