FRAMSÓKNARMENN í Norðausturkjördæmi telja að í ljósi breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu skuli nú þegar hafinn undirbúningur, samningsmarkmið skilgreind og síðan farið í samningaviðræður um inngöngu í Evrópusambandið.

FRAMSÓKNARMENN í Norðausturkjördæmi telja að í ljósi breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu skuli nú þegar hafinn undirbúningur, samningsmarkmið skilgreind og síðan farið í samningaviðræður um inngöngu í Evrópusambandið. Niðurstöður skulu lagðar í þjóðaratkvæði.

Í stjórnmálaályktun sem samþykkt var á kjördæmisþingi framsóknarmanna í Norðausturkjördæmi á Egilsstöðum um helgina segir að í því starfi sem framundan er, skipti miklu að vandað verði til verka og að sú hugmyndafræði sem Framsóknarflokkurinn hafi ávallt byggt á, um öflugt velferðarkerfi á grundvelli þróttmikils atvinnulífs verði höfð að leiðarljósi.

Þá segir að innan Framsóknarflokksins hafi verið unnið mikið nefndarstarf við að skilgreina og skoða stöðu krónunnar gagnvart öðrum gjaldmiðlum með tilliti til framtíðarlausna. Niðurstaða nefndarinnar sé sú að ef leggja eigi niður íslensku krónuna sé rétt að taka upp alþjóðlegan gjaldmiðil. Evra sé talin falla best að íslenskum þörfum vegna viðskiptahagsmuna þjóðarinnar.