Jólin Kristín Eva flugfreyja.
Jólin Kristín Eva flugfreyja.
ICELAND Express hefur ákveðið að gera tilraun með það í desember að búa til jólastemningu um borð í vélum sínum. Verður matseðli m.a.
ICELAND Express hefur ákveðið að gera tilraun með það í desember að búa til jólastemningu um borð í vélum sínum. Verður matseðli m.a. breytt á þann veg að nú verður hægt fá heitt kakó með rjóma og piparkökur í eftirrétt og, fyrir þá sem það vilja, flatkökur með hangikjötsáleggi, íslenskt jólaöl eða jólabjór. Vélarnar eru líka í jólabúningi og flugliðarnir bera jólaskraut í barmi.