— Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
FALLEGUR söngur ómaði í miðbænum á Akureyri í gær, á skemmtunum á vegum Tónlistarskólans í kirkjutröppunum.
FALLEGUR söngur ómaði í miðbænum á Akureyri í gær, á skemmtunum á vegum Tónlistarskólans í kirkjutröppunum. Árdegis mætti þangað hópur grunnskólabarna og söng, Karlakór Akureyrar – Geysir í hádeginu, Kór aldraðra eftir hádegi og síðdegis börn af öllum leikskólum ásamt barnakórum bæjarins. Hér spreytir síðasti hópurinn sig á þjóðsöngnum.