ÁRLEGUR fundur EA-samtakanna (Emotions Anonymous) um jólakvíða verður fimmtudaginn 4. desember nk. kl. 18 í kórkjallara Hallgrímskirkju. Gestur fundarins er sr. Birgir Ásgeirsson, sem heldur stutt erindi.

„Því miður er vaxandi hópur fólks sem er að berjast við kvíða fyrir þessi jól,“ segir í tilkynningu frá samtökunum. Allir eru velkomnir á fundinn.