— Morgunblaðið/RAX
ICELANDAIR hefur reglulegt flug til Stavanger í Noregi næsta sumar og Düsseldorf í Þýskalandi. Þá verður flogið oftar til Toronto í Kanada. Flug til Orlando í Flórída verður fellt niður næsta sumar.

Í heildina verður minna flogið, samkvæmt áætlun næsta sumars, frá því sem verið hefur. Vegna samdráttar á íslenska markaðnum er aukin áhersla á að sækja ferðafólk til landsins.