SAMKVÆMT nýrri könnun Capacent Gallup nýtur Vinstrihreyfingin - grænt framboð nú mests fylgis meðal þjóðarinnar, eða 32%. Fylgi Sjálfstæðisflokksins er komið niður í 21% og hefur ekki áður mælst minna.

Fylgi Samfylkingarinnar mælist 31%, Framsóknarflokks 8% og Frjálslynda flokksins og Íslandshreyfingarinnar 3%. Um 32% aðspurðra sögðust styðja ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar.