Búið spil Ekki er vitað hvort allt lék í lyndi þegar myndin var tekin.
Búið spil Ekki er vitað hvort allt lék í lyndi þegar myndin var tekin. — Reuters
BANDARÍSKA söngkonan Madonna vinnur nú hörðum höndum að því að fjarlægja allt sem tengist fyrrverandi eiginmanni hennar, breska kvikmyndagerðarmanninum Guy Ritchie, af heimili sínu í Lundúnum.
BANDARÍSKA söngkonan Madonna vinnur nú hörðum höndum að því að fjarlægja allt sem tengist fyrrverandi eiginmanni hennar, breska kvikmyndagerðarmanninum Guy Ritchie, af heimili sínu í Lundúnum. Skilnaður parsins gekk endanlega í gegn í síðustu viku, og Madonna var ekki lengi að taka til hendinni í kjölfarið. Þannig mun hún hafa losað sig við allar gjafir sem Ritchie gaf henni, auk þess sem hún hefur breytt kveðjunni á símsvara heimilisins. Þá mun hún hafa fjarlægt allar myndir af sér og leikstjóranum, en hún leyfir þó myndum af honum og börnum þeirra að hanga uppi.