LANDSSAMBAND Framsóknarkvenna (LFK) fagnar því í sérstakri ályktun að tvær nýjar þingkonur hafi bæst við þingflokk Framsóknarflokksins, þær Helga Sigrún Harðardóttir og Eygló Harðardóttir.

LANDSSAMBAND Framsóknarkvenna (LFK) fagnar því í sérstakri ályktun að tvær nýjar þingkonur hafi bæst við þingflokk Framsóknarflokksins, þær Helga Sigrún Harðardóttir og Eygló Harðardóttir. LFK væntir mikils af störfum þeirra og trúir því að þær muni gera góða hluti fyrir þjóðina og þingflokkinn. LFK fagnar því jafnframt að Valgerður Sverrisdóttir sé orðin formaður.