Skynsöm Reese Witherspoon missir sig ekki í jólagjöfunum.
Skynsöm Reese Witherspoon missir sig ekki í jólagjöfunum.
BANDARÍSKA leikkonan Reese Witherspoon ætlar bara að gefa börnum sínum eina eða tvær jólagjafir, þrátt fyrir að hafa vel efni á að gefa þeim mun fleiri.
BANDARÍSKA leikkonan Reese Witherspoon ætlar bara að gefa börnum sínum eina eða tvær jólagjafir, þrátt fyrir að hafa vel efni á að gefa þeim mun fleiri. Witherspoon á tvö börn, hina níu ára gömlu Ava og hinn fimm ára Deacon, bæði með fyrrverandi eiginmanni sínum, leikaranum Ryan Phillippe. Hún segist alls ekki vilja spilla börnunum sínum. „Ég er svolítið ströng með þetta allt saman. Ég held að börn hafi gott af því fá ekki of mikið upp í hendurnar,“ segir leikkonan fagra sem á nú í ástarsambandi við leikarann Jake Gyllenhaal.