HVAÐ á að kaupa á barnið fyrir jólin? Hvað á að gera við jólafötin sem eru nær óslitin en barnið er vaxið upp úr?
HVAÐ á að kaupa á barnið fyrir jólin? Hvað á að gera við jólafötin sem eru nær óslitin en barnið er vaxið upp úr? Sjálfboðaliðahópur á vegum Neskirkju stendur fyrir jólafata-skiptimarkaði fyrir börn og hvetur fólk til að koma með jólafötin af börnum sínum sem þau eru vaxin upp úr og fá þeim skipt fyrir föt sem passa þetta árið. „Stuðlum að endurvinnslu og sparnaði hjá barnafjölskyldum,“ segir í tilkynningu. Markaðurinn er til húsa á 1. hæð safnaðarheimilis Neskirkju, opið sunnudaga á aðventu kl. 12-14.