Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir
Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir
AREV N1 slhf., hefur keypt rúmlega helmingshlut í rekstrarfélagi Next í Kringlunni, Dagsól ehf. Hefur verslunin verið opnuð að nýju.

AREV N1 slhf., hefur keypt rúmlega helmingshlut í rekstrarfélagi Next í Kringlunni, Dagsól ehf. Hefur verslunin verið opnuð að nýju. Meðeigendur Arev N1 í félaginu eru Ragnhildur Anna Jónsdóttir og Sverrir Berg Steinarsson, en Ragnhildur Anna hefur verið framkvæmdastjóri í verslun Next á Íslandi frá upphafi rekstrar hérlendis. Ragnhildur Anna verður framkvæmdastjóri hins nýja félags en Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, fjárfestingarstjóri Arev N1, verður stjórnarformaður félagsins.

Seljendur í viðskiptunum er þrotabú Nordex ehf. og Landsbanki Íslands sem selur birgðir. Aðrir viðsemjendur hins nýja félags eru leigusalinn Landic fasteignafélag og Next plc, sem hefur aðsetur í Leicester.

Allir ráðningarsamningar við starfsmenn verða yfirteknir, en um fjörutíu manns starfa hjá félaginu.

Arev verðbréf sinna eignastýringu sjóðsins Arev N1, en hann er í eigu eignarhaldsfélagsins Arev og Sparisjóðabankans. Önnur fyrirtæki sem Arev N1 á hlut í eru Emmessís, Áltak, Yggdrasill, Sævar Karl, Kraum, Sjá og Agóra.

sisi@mbl.is