Gylfi Zoëga
Gylfi Zoëga
ÍSLENDINGAR eiga um tvo kosti að velja: afturhvarf til tíma haftakerfis eða áfram inn í Evrópusambandið. Þetta segir Gylfi Zoëga prófessor í grein sem birt er á vefnum voxeu.org.

ÍSLENDINGAR eiga um tvo kosti að velja: afturhvarf til tíma haftakerfis eða áfram inn í Evrópusambandið. Þetta segir Gylfi Zoëga prófessor í grein sem birt er á vefnum voxeu.org. Hann segir að landið verði að velja síðarnefnda kostinn vilji það koma í veg fyrir að vel menntað ungt fólk flytji frá landinu.

Í greininni fer Gylfi yfir aðdraganda bankahrunsins á Íslandi og afleiðingar þess. Hann segir að aðalorsök hrunsins sé að bankakerfið hafi vaxið þjóðinni yfir höfuð með tilheyrandi lánsfjárframboði, fasteignabólu og skuldsetningu.

Seðlabankinn hafi brugðist við með því að hækka stýrivexti jafnt og þétt. Þetta hafi hins vegar ekki komið í veg fyrir þenslu og bóluna sem myndaðist á undan fallinu. Þvert á móti virðist aðgerðirnar hafa nært bóluhagkerfið.

„En það hlýtur að hafa verið öllum ljóst undir lokin að það (hagkerfið) var knúið áfram af skuldasöfnun sem ekki var hægt að viðhalda til lengdar og að fjármálakreppa var að verða óhjákvæmileg. Ísland hefði fengið á baukinn þótt umrótið á alþjóðamarkaði hefði ekki verið til staðar,“ segir Gylfi.

Hann bendir einnig á, að þegar ekki sé úr mjög mörgum að velja verði enn mikilvægara en ella að velja þann hæfasta í hvert starf. Þessi hvati sé fyrir hendi í einkafyrirtækjum en það sama sé ekki hægt að segja um opinbera kerfið. Svo eitt dæmi sé tekið þá dragi það úr virkni og trúverðugleika Seðlabankans að skipa fyrrverandi stjórnmálamann í embætti formanns bankastjórna.

Gylfi segir aðild að ESB geta leyst mörg vandamál. Það gæti bætt ákvarðanatöku og framkvæmd laga kynni að batna. „Upptaka evru myndi koma á stöðugleika í peningamálum og hafa í för með sér lægri vexti,“ segir Gylfi.

Í hnotskurn
» Gylfi segir í grein sinni á vefnum voxeu.org. að aðild að EES, sem hafði í för með sér aðgang að innri markaði og frjálsu flæði fjármagns, án aðildar að sameiginlegum gjaldmiðli og ákvarðanatöku, hafi gert hagstjórn á Íslandi erfiða, jafnvel ómögulega.
» Seðlabankinn réð ekki við það gífurlega fjármagn sem kom inn í landið en aðild að ESB geti leyst mörg vandamál og upptaka evru komið á stöðugleika í peningamálum.