GUÐRÚN Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópransöngkona og Francisco Javier Jáuregui gítarleikari flytja lög af nýútkomna geisladiskinum Mitt er þitt – íslensk og spænsk sönglög á útgáfutónleikum í Langholtskirkju annað kvöld kl. 20.
GUÐRÚN Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópransöngkona og Francisco Javier Jáuregui gítarleikari flytja lög af nýútkomna geisladiskinum
Mitt er þitt – íslensk og spænsk sönglög
á útgáfutónleikum í Langholtskirkju annað kvöld kl. 20. Guðrún og Javier hafa haldið tónleika í fjölmörgum löndum á liðnum árum með margs konar tónlist frá ólíkum löndum, en hafa alltaf haft að minnsta kosti nokkur íslensk og spænsk lög með á efnisskránni. Á
Mitt er þitt
hafa þau valið þjóðlög og önnur sönglög sem þeim eru sérstaklega kær frá heimalöndum sínum. Tólf tónar gefa diskinn út.