ÁTJÁN ára piltur var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald til 22. desember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Fjórir aðrir voru úrskurðaðir í farbann.

ÁTJÁN ára piltur var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald til 22. desember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Fjórir aðrir voru úrskurðaðir í farbann. Fimmmenningarnir, sem allir eru ungir Pólverjar, eru grunaðir um innflutning á talsverðu magni af e-töflum frá Póllandi. Lagt var hald á þær í síðustu viku. Lögreglu í Póllandi og Europol hefur verið tilkynnt um málið. Mennirnir hafa ekki komið við sögu lögreglunnar á Íslandi áður, en hafa allir búið hér um nokkurt skeið. una@mbl.is