17. desember 1928 Davíð Stefánsson hlaut fyrstu verðlaun í samkeppni um ljóð til flutnings á Alþingishátíðinni sumarið 1930. Það er nú einkum þekkt fyrir ljóðlínurnar „Þú mikli, eilífi andi, sem í öllu og alls staðar býrð“. 17.
17. desember 1928
Davíð Stefánsson hlaut fyrstu verðlaun í samkeppni um ljóð til flutnings á Alþingishátíðinni sumarið 1930. Það er nú einkum þekkt fyrir ljóðlínurnar „Þú mikli, eilífi andi, sem í öllu og alls staðar býrð“.
17. desember 1985
Brú á Bústaðavegi í Reykjavík, yfir Kringlumýrarbraut, var formlega opnuð. Hún er 72 metra löng og 26 metra breið.
17. desember 1995
Göngubrú yfir Kringlumýrarbraut var formlega tekin í notkun. Þetta er hundrað metra stálbitabrú sem tengir saman göngustíga frá Seltjarnarnesi upp í Elliðaárdal.
17. desember 1998
Umdeilt frumvarp um gagnagrunn á heilbrigðissviði var samþykkt á Alþingi með 37 atkvæðum gegn 20. Stjórnarandstæðingar sökuðu ríkisstjórnina um gerræði í málinu.Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.