Vígalegur Drekar eru kunnugleg minni víða um heim og þar á meðal í Slóvakíu þar sem þessi dreki gætir höfuðborgarinnar Ljubljana.
Vígalegur Drekar eru kunnugleg minni víða um heim og þar á meðal í Slóvakíu þar sem þessi dreki gætir höfuðborgarinnar Ljubljana.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is FYRIR stuttu kom út á íslensku fyrsta bókin í bókaflokki Naomi Novik sem vakið hefur athygli víða um heim og selst einkar vel.

Eftir Árna Matthíasson

arnim@mbl.is

FYRIR stuttu kom út á íslensku fyrsta bókin í bókaflokki Naomi Novik sem vakið hefur athygli víða um heim og selst einkar vel. Ytra hafa komið út fimm bækur og selst bráðvel og sá mikilvirki leikstjóri Peter Jackson (leikstjóri Lord of the Rings-þríleiksins og King Kong) hyggst gera kvikmynd eftir bókunum.

Sagan gerist í upphafi nítjándu aldar í heimi sem er ekki svo ýkja frábrugðinn okkar; Englendingar og Frakkar óvinir til að mynda, Ottómanaveldið á fallanda fæti og svo má telja, en það sem helst er frábrugðið er að drekar eru til og í nánu samneyti við menn. Fyrsta bókin í röðinni hefst þannig þar sem kapteinninn William Laurence, ungur maður á uppleið í flota hennar hátignar, hertekur franska freigátu með drekaeggi innan borðs.

Örlögin haga því svo að drekinn kýs Laurence sem félaga sinn og þar með eru örlög hans ráðin, allt verður að víkja fyrir drekahirðunni, enda þurfa enskir alla þá dreka sem þeir komast yfir í glímunni við Napóleon og heri hans. Svo vindur fram fyrri bókinni; höfuðáhersla lögð á samskipti kapteinsins unga, sem verður eiginlega að leggja líf sitt á hilluna fyrir drekann Temeraire.

Fyrsta bókin í Temeraire-röðinni heitir His Majesty's Dragon og kom út 2006 (íslensk útgáfa hennar ber heitið Temeraire – Dreki hans hátignar). Það ár komu tvær bækur til, Throne of Jade og Black Powder War, ein kom 2007, Empire of Ivory, og svo kom sjötta bókin, Victory of Eagles, út á dögunum. Í viðtali vegna kynningar á þeirri bók sagðist Naomi Novik reikna með því að þurfa níu bækur til að segja söguna alla, en hugsanlega yrðu bækurnar fleiri eða færri.

Víðfeðmt sögusvið

Það sem hreif Jackson, og flesta sem lesa bækurnar að því ég best fæ séð, er það hve sögusviðið er víðfeðmt, hve allt virðist útpælt (til að mynda fjöldi ólíkra tegunda dreka og stéttaskipting í enska hernum) og hve mikið er af allskyns smáatriðum í bókunum sem miða kannski ekki sögunni áfram, en fylla út í baksvið sögunnar, gera heiminn raunverulegri og gæða persónurnar lífi. Þannig er Temeraire bæði barnalegur og klár í senn, rétt eins og búast mætti við af bráðungum dreka, en eftir því sem hann fær vit til, og drekar eru víst ekki eftirbátar manna hvað varðar gáfur, kemst hann til vitundar um það hve hlutskipti dreka er að mörgu leyti hörmulegt. Hvort það muni síðan leiða til frelsisbaráttu dreka á eftir að koma í ljós.

Hættulegt tilboð

METSÖLUHÖFUNDURINN Joy Fielding hefur skrifað á annan tug spennusagna. Sú nýjasta er Charley's Web sem síðustu vikur hefur verið á metsölulista Eymundsson. Blaðakonan Charley Webb skrifar umdeilda pistla og fær bæði aðdáendabréf og haturspóst. Dag einn berst henni tilboð um að skrifa ævisögu ungrar konu sem situr í fangelsi fyrir hrottaleg morð á þremur börnum. Charley ákveður að taka boðinu og á fundi með morðingjanum sem ýmislegt bendir til að hafi ekki staðið einn að morðunum. Charley, sem er tveggja barna einstæð móðir, verður ástfangin af lögfræðingi morðingjans. Fleiri flækjur eru í lífi hennar því móðir hennar sem yfirgaf eiginmann sinn og börn rúmum tuttugu árum áður til að flytja til Ástralíu með ástkonu sinni hefur snúið til baka og vill endurnýja kynni við börn sín sem taka henni fálega og telja hana hafa svikið sig. Charley fer síðan að fá hótanir um að börn hennar séu í hættu.

Höfundi tekst ágætlega að halda lesandanum við efnið. Þegar líður á sögu verða fjölskyldumál aðalsögupersónunnar æ fyrirferðarmeiri og morðgátan sjálf fellur nokkuð í skuggann. Þetta er þó engan veginn stór galli því hugleiðingar um ábyrgð foreldra og fyrirgefningu og hvað það er sem gerir að verkum að fullorðnir skaði börn eru alls ekki leiðinlegar aflestrar. Spenna færist svo af miklum þunga í verkið undir lokin. Þar er uppljóstrun sem kemur á óvart, alveg eins og á að vera í góðum sakamálasögum.

Fielding hefur oft sýnt góða takta í spennusögum sínum. Charley's Web er ekki meðal bestu bóka hennar en prýðileg afþreying engu að síður.

Metsölulistar»

New York Times

1. Scarpetta – Patricia Cornwell

2. The Christmas Sweater – Beck, Balfe, Wright

3. Cross Country – James Patterson

4. The Story of Edgar Sawtelle – David Wroblewski

5. Arctic Drift – Clive Cussler and Dirk Cussler

6. Just After Sunset – Stephen King

7. The Hour I First Believed – Wally Lamb

8. The Host – Stephenie Meyer

9. The Charlemagne Pursuit – Steve Berry

10. Your Heart Belongs to Me – Dean Koontz

Waterstone's

1. The White Tiger – Aravind Adiga

2. A Thousand Splendid Suns – Khaled Hosseini

3. The Shack – William P. Young

4. The Book Thief – Markus Zusak

5. The Appeal – John Grisham

6. This Year it Will be Different – Maeve Binchy

7. The Gift – Cecelia Ahern

8. The Return – Victoria Hislop

9. Azincourt – Bernard Cornwell

10. Remember Me? – Sophie Kinsella

Eymundsson

1. Venetian Betrayal – Steve Berry

2. People of the Book – Geraldine Brooks

3. Hold Tight – Harlan Coben

4. World Without End – Ken Follett

5. Charley's Web – Joy Fielding

6. Rough Justice – Jack Higgins

7. Front – Patricia Cornwell

8. Remember Me? – Sophie Kinsella

9. Compulsion – Jonathan Kellerman

10. Timebomb – Gerald Seymour