Robert Dariusz Sobiecki
Robert Dariusz Sobiecki
ROBERT Dariusz Sobiescki sem Hæstiréttur dæmdi 4. desember sl. í þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga stúlku á Hótel Sögu hefur enn ekki komið í leitirnar.

ROBERT Dariusz Sobiescki sem Hæstiréttur dæmdi 4. desember sl. í þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga stúlku á Hótel Sögu hefur enn ekki komið í leitirnar. Hann er eftirlýstur hér á landi og engar vísbendingar hafa komið fram um að hann hafi farið úr landi, samkvæmt upplýsingum Fangelsismálastofnunar.

Sobiecki var í farbanni þar til dómur féll og átti að hefja afplánun þá þegar. Þegar hann gaf sig ekki fram lýsti lögreglan eftir honum. Lögreglan tekur við upplýsingum um ferðir mannsins í síma 444-1000.