Weezer Í svakalegu jólaskapi í boði iPhone.
Weezer Í svakalegu jólaskapi í boði iPhone.
BANDARÍSKA rokksveitin Weezer hefur ákveðið að gefa út sex jólalög er voru sérstaklega hljóðrituð fyrir tölvuleik sem hægt er að kaupa á iPhone.

BANDARÍSKA rokksveitin Weezer hefur ákveðið að gefa út sex jólalög er voru sérstaklega hljóðrituð fyrir tölvuleik sem hægt er að kaupa á iPhone.

Lögin eru „We Wish You a Merry Christmas“, „Silent Night“, „O Holy Night“, „First Noel“, „Hark the Herald Angels Sing“ og „O Come, All Ye Faithful“.

Lögin verða gefin út á netinu fyrir jól sem sérstök jólaplata, en henni fylgja tvö aukalög sem tengjast jólunum ekki á nokkurn hátt.

Weezer hefur nýlokið heimsreisu sinni fyrir sjöttu breiðskífu sína sem er samnefnd sveitinni, en hefur verið kölluð Rauða platan.