— Reuters
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
SAGT er að Britney Spears hafi beðið Kevin Federline um að flytja aftur inn til sín og gefa sambandi þeirra annað tækifæri. Þau eiga tvo drengi saman og er Federline með fullt forræði yfir þeim.

SAGT er að Britney Spears hafi beðið Kevin Federline um að flytja aftur inn til sín og gefa sambandi þeirra annað tækifæri. Þau eiga tvo drengi saman og er Federline með fullt forræði yfir þeim.

„Kevin hefur eytt miklum tíma heima hjá Britney og ég held að þau verði farin að búa saman aftur áður en langt um líður. Þau hafa fallið í far gamla sambandsins frekar auðveldlega,“ sagði félagi Federlines um málið. „Kevin er spenntur fyrir því að búa með Britney aftur því honum finnst erfitt að vera einstæður faðir. Hún er mjög ánægð með þetta því þá getur hún fengið börnin aftur og samband með einhverjum sem hún treystir. Þau hafa gert sér grein fyrir því að þau elska hvort annað ennþá, farið til ráðgjafa og gert áætlanir um að láta sambandið ganga.“

Vinir Spears hafa varað hana við að byrja aftur með Federline. Þeir halda að hann vilji aðeins endurnýja sambandið því hann sakni lífsstílsins sem hann naut sem eiginmaður hennar. „Þegar Kevin var með Britney eyddi hann dögunum í golfi, keyrandi flotta bíla og í að ferðast. Allt fyrir hennar peninga,“ segja vinir Spears.

Federline heldur því samt fram að það sé Spears, ekki peningarnir hennar, sem hann sækist eftir. Hann segist vera mjög stoltur af Spears núna og er á því að hún sé aftur orðin stúlkan sem hann varð ástfanginn af í upphafi.